Heilbrigðisskólinn

Um brautina

Markmið lyfjatæknabrautar er að sérmennta fólk til starfa við afgreiðslu, sölu og dreifingu lyfja. Inntökuskilyrði á brautina er grunnskólapróf.

Lyfjatæknanám er viðurkennd starfsmenntun og lyfjatæknar eru eftirsóttir starfskraftar. Starfsheiti þeirra er lögverndað af heilbrigðisráðuneytinu.

Kennt er samkvæmt nýrri námskrá í lyfjatækni (frá haustönn 2004). Nýja námskráin er 162 einingar og er gert ráð fyrir að meðalnámstíminn sé fjögur og hálft ár; eins og hálfs árs almennt nám (3 annir) og þriggja ára sérnám (6 annir), þar af 14 vikna starfsþjálfun í lyfjaverslun.

Fyrstu þrjár annirnar eru kallaðar aðfararnám en þá eru teknir fyrir skilgreindir áfangar sem kenndir eru í flestum framhaldskólum landsins. Aðfaranámi verður að ljúka að mestu leyti áður en nemandi getur hafið nám í séráföngum lyfjatæknabrautar. Í aðfaranámi er lögð áhersla á undirstöðugreinar eins og tungumál, samfélagsgreinar og raungreinar.

Hér má sjá hvernig nýja námsbrautin skiptist í áfanga: Brautin haustið 2006.

Lyfjatæknar vinna fjölbreytt störf víða í samfélaginu. Flestir starfa í apótekum, í heildsölum, í lyfjagerð, á sjúkrahúsum og í opinberum stofnunum, t.d. hjá Lyfjastofnun.

Kennarar brautarinnar: Bryndís Þóra Þórsdóttir og Guðrún Kjartansdóttir



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica