Starfsþjálfun
Starfsþjálfun er 16 vikur eða 80 vaktir og fer fram á viðurkenndum sjúkrahúsum og/eða heilbrigðisstofnunum. Starfsþjálfun er launuð. Æskilegt er að starfsþjálfun fari fram á þremur mismunandi deildum eða stofnunum. Starfsþjálfun í 16 vikur er metin sem 16 eininga nám á sjúkraliðabraut.
Tilgangur starfsþjálfunar er að nemendur þjálfi sem best þá færni sem þeir tileinkuðu sér í verknáminu og kynnist deildastarfi og vaktafyrirkomulagi.
Miðað er við að starfsþjálfunartíminn sé 60-100% vinna í alls 16 til 27 vikur og að hver vinnulota sé ekki styttri en 4 vikur.
Nemendur geta tekið 5 vikur af starfsþjálfun og fengið hana metna, þegar þeir hafa lokið áföngunum HJÚ103-203, HJV103 og VIN105.
Nemendur þurfa sjálfir að útvega sér starfþjálfunarpláss á stofnunum. Venja er að nemendur taki starfsþjálfun í framhaldi af verknámsáföngum VIN105, 205 og 305.
Í lok hvers starfsþjálfunartímabils þurfa nemendur að skila umsögn frá stofnun til kennslustjóra sjúkraliðabrautar.
Vakin er athygli á því að nemendur á sjúkraliðabraut sem ætla að brautskráðst frá skólanum á vorönn verða að ljúka fjögurra vikna starfsþjálfun sumarið áður þ.e. eftir verknámsáfangann VIN105 til þess að geta útskrifast í maí.
