Viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsmenntabraut
Tveggja til þriggja ára starfsnám. Nemendur skulu hafa lokið námi í skóla með fullnægjandi árangri og einnig áskilinni starfsþjálfun að fullu. Ekki er gerð krafa um að nemendur í löggiltum iðngreinum hafi lokið sveinsprófi. Auk þess skulu nemendur hafa bætt við sig námi í almennum bóklegum greinum þannig að heildarnám í einstökum greinum verði ekki minna en hér greinir:
Íslenska 15 einingar.
Enska 15 einingar.
Saga 6 einingar.
Náttúruvísindi 9 einingar.
Stærðfræði 6 einingar.
Íþróttir 8 einingar.
Fyrra nám nemenda í ofantöldum greinum kemur til frádráttar.
Einnig skulu nemendur bæta við sig námi í 3ja máli eða stærðfræði 12 einingar og samfélagsgreinum eða náttúrufræðigreinum eða íþróttagreinum 15 einingar samkvæmt eigin vali. Fyrra nám í þeim námsgreinum sem hér um ræðir kemur ekki til frádráttar. Miða skal við að nám í grein verði ekki minna en 9 ein. samtals. Saga og stærðfræði eru þó undanskildar frá 9 ein. reglunni. Starfsgreinar sem falla undir þessa málsgrein eru taldar upp í viðauka II. Það eru til dæmis: Tanntæknabraut TT og Hjúkrunar- og móttökuritarabraut HMR.
Samantekt úr aðalnámskrá framhaldsskóla.
Kristrún Sigurðardóttir.
