Að nemandi
geti gert grein fyrir nokkrum grundvallarhugtökum í meinafræði og tengsl þeirra við sjúkdóma í mönnum.
geti lýst hvernig hægt er að minnka líkur á frumulöskun af völdum umhverfisþátta.
þekki hlutverk helstu samvægisferla í heilbrigði mannslíkamans.
læri um þróun og sameiginleg einkenni helstu krabbameina og tengsl þeirra við umhverfis-og erfðaþætti.
geti gert grein fyrir meingerð, einkennum og orsökum algengustu sjúkdóma í þekjukerfi, stoðkerfi og taugakerfi.
Í áfanganum er fjallað um grundvallarhugtök í meinafræði og þróun sjúklegra breytinga í líkamsvefjum. Það er fjallað nokkuð almennt um sýkingar, æxlisvöxt og umhverfislöskun og nokkuð ítarlega um sjúkdóma í stoðkerfi, taugakerfi og húð.
Kennslugögn: Bogi B. Ingimarsson. Sjúkdómar í mönnum (1996). Reykjavík, Iðnú.
Efni á veraldarvefnum.
Stuðningsefni:
Phillips, Murray, Crocker. 1997. The Biology of Disease. Blackwell Science Ltd., U.K., 2 Ulvestad, Ragnhild, (1996). Sykdomslære, Gyldendal Norsk Forlag A/S
Helstu slóðir er að finna á vef Heilbrigðisskólans, sjúkraliðabraut/ áhugaverðir tenglar.
70% lokapróf
30% verkefni og próf á önn