Hlustun: að nemandi geti fylgt meginþræði í samræðum eða umfjöllun um tiltekin málefni líðandi stundar; að hann geti skilið frásögn eða lýsingar, t.d. um ferðalag eða endurminningar.
Lestur: að nemandi verði fær um að lesa fjölbreytta texta og geti greint aðalatriði í texta frá aukaatriðum; geti aflað sér upplýsinga með lestri efnis á Netinu, dagblaða, bæklinga, ferðahandbóka eða annarra handbóka.
Samskipti: að nemandi geti fylgst með og tekið þátt í kennslustundinni á viðkomandi tungumáli; að hann geti óundirbúinn tekið þátt í samræðum um daglegar athafnir eða efni sem hann hefur kynnt sér sérstaklega og að hann geti undirbúinn tekið þátt í samræðum um ýmis efni og rökstutt mál sitt.
Frásögn: að nemandi geti lýst nákvæmlega persónum, umhverfi og ytri aðstæðum; að hann geti sagt ítarlega frá ferðalagi, endurminningum o.fl.; geti greint frá skoðunum sínum um ýmis efni.
Ritun: að nemandi verði fær um að koma hugsunum sínum á framfæri í rituðu máli t.d. í lýsingum á fólki, umhverfi og ytri aðstæðum, geri útdrátt úr texta og geri grein fyrir tilteknu málefni sem hann hefur kynnt sér vel.
Fjölbreyttir textar verða lesnir og verkefni unnin upp úr þeim. Nemendur kynna sér fjölbreyttan menningarheim hinna spænskumælandi þjóða og bera saman við sinn eigin. Nemendur vinna þemaverkefni og kynna fyrir samnemendum sínum.
Áfanginn er símatsáfangi og því ekkert lokapróf. Til að ljúka áfanganum er nemendum skylt að ljúka öllum þáttum námsmats og ná 5 í lokaeinkunn.
Aires de fiesta latina.
Góð orðabók.
Námsefni frá kennaranum og hlustunarefni verða aðgengileg í Blackboard.
Annarpróf 20%
Munnlegt próf 10%
Hlustunarverkefni 15%
Blaðagreinar 10%
Verkefni úr Aires de fiesta latina 25%
Ritgerð úr kvikmynd 10%
Ritgerð úr smásögu 10%