Við lok áfanga skulu nemendur:
Kennd verða grundvallar atriði varðandi fréttavinnslu fyrir sjónvarp. Nemendur afli frétta hvort sem er innan eða utan skólans. Vinna fréttir til sýningar í sjónvarpi. Fréttatími verður auglýstur í skólanum einu sinni í viku. aAð honum loknum verða fréttirnar aðgengilegar á heimasíðu skólans.
Nemendur vinna einnig að gerð heimildarmynda, í fyrstu verða lagðar fram hugmyndir og síðan valið viðfangsefni, hugmyndin þróuððu og gagnasöfnum hefst. Farið ítarlega í hvernig hún fer fram. Eftir gagnasöfnun er unnið handrit. Allur undirbúningur fyrir myndatöku fer einnig fram á þessu misseri. Í lok annar skal handrit vera tilbúið til myndatöku á vormisseri.
Nemandi getur hugsanlega nýtt sér heimildarmynda verkefnið sem verkefni í annarri námsgrein, s.s. sagnfræði eða félagsfræði, sem yrði þá að vinna í samvinnu við kennara í því fagi. Lögð verður áhersla á frumkvæði nemenda og skapandi innlegg þeirra í áfangann. Nemendur hafa aðgang að tækjakosti skólans, Dvcam/HD upptökuvélum, ljósum, klippitölvu og klippihugbúnaðinum Final Cut.
Í samráði við kennarann.
Verkefnavinna, símat í áfanga. Öll verkefni í áfanganum verða metin.