Nám

Áfangi

BÍÓ 213

  • Áfangaheiti: Kvikmyndaskoðun og sjónvarpupptökutækni
  • Undanfari: BÍÓ 103 eða 203

Markmið

Við lok áfanga skulu nemendur:

  • Hafa fengið innsýn inn í táknmál kvikmynda
  • Geta greint kvikmynd út frá handriti, myndatöku og klippingu
  • Hafa áttað sig á frásagnarmáta  ýmissra kvikmyndaforma s.s. bíómynd, stuttmynd eða heimildarmynd
  • Hafa áttað sig á leyndum auglýsingum í kvikmyndum
  • Kvikmyndir sem áróðurstæki
  • Hafa vitneskju um hvernig sjónvarpsupptökur fara fram í stúdíói
  • Hafa reynslu af slíkum upptökum í gegnum bein verkefni eins og vinnslu á umræðuþáttum
  • Kunna skil á að koma t.d. sjónvarpsþætti í útsendingu
  • Hafa innsýn inn í hvernig sjónvarpsefni nýtist á netinu og hvernig því er þar komið fyrir
  • Kunna að vinna samkvæmt tíma- og verkefnaáætlun og skila verkefnum á tilsettum tíma

Námsfyrirkomulag

Námið í þessum áfanga er tvískipt, annars vega kvikmyndarýni  og hins vegar sjónvarps upptökur í stúdíói. Nemendur munu skoða tiltekinn hluta kvikmynda sem síðan eru teknar og greindar niður. Skoðunin fer fram bæði í bíóhúsum og skólastofunni. Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, umræðna og verkefnavinnu. Nemendur vinna ferilmöppu og gera þannig grein fyrir hverju viðfangsefni fyrir sig í möppuna, sem þau skila svo inn í lok annar. Notast verður við Blackboard.  Farið verður í gegnum upptökur í stúdíói með 3 til 4 myndatökuvélum og vinnslu á sjónvarpsþáttum t.d. umræðuþætti. Settur verður upp stjónvarpsþáttur og hann unninn frá upphafi til enda, þ. e. hannaður, skipulagður, tekin upp, klipptur til og sendur út á netinu, þ.e. heimasíðu skólans, sérstakri sjónvarpsíðu.

Kennslugögn

Blackboard,  kvikmyndir og ljósritaðar greinar.
Kvikmyndatökuvélar og annað sem þarf í stúdíó vinnslu.

Námsmat

Ferilmappa 25%.
Lokaverkefni  75%

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica