Nám

Áfangi

SKÖ 103

  • Áfangaheiti: Listsköpun

Markmið

Markmiðið er að skapa forvitni, skilning og áræðni.


Við lok áfangans skulu nemendur:

  • Hafa lært að vinna með hugmyndir
  • Hafa lært að þekkja sjálfa sig betur
  • Hafa öðlast kjark til að tjá sig og kasta fram hugmyndum sínum
  • Hafa innsýn inn í myndlist, leiklist, ritlist og kvikmyndalist
  • Hafa lært að vinna með ýmis konar efnivið þessara listgreina
  • Hafa skilning á góðri textavinnu til að tjá sig og setja fram hugmyndir
  • Hafa lært að skapandi hugsun nýtist á öðrum sviðum en í listum
  • Hafa þróað með sér hæfni til að velja og hafna
  • Hafa styrkt sjálfsmat sitt og þor til framkvæmda.

Undir lok áfangans hafi nemandinn getu til persónulegrar nálgunar á tilteknu viðfangsefni.

Efnisatriði

Sá tækjakostur sem til þarf hverju sinni sem skólinn hefur til umráða.

Námsfyrirkomulag

Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á tilraunavinnu þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla.

Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem leitast verður við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar. Nemendur þrói með sér kjark til að setja fram allar þær hugdettur sem upp koma og læri síðan að vinna úr þeim haldbærar hugmyndir.

Nemandi átti sig á góðri og slæmri hugmynd. Nemendum er frjálst að vinna sínar hugmyndir í hvaða efnivið sem er og fá þar leiðsögn, bæði hvað varða úrvinnslu sem og skipulag vinnunnar. Áhersla er lögð á tilraunavinnu í kvikmyndum, leiklist, myndlist og textasmíði, þar sem unnið er í og með ólík efni og miðla.

Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem leitast verður við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar á þeim hugmyndum sem upp koma.

Nemendur vinni saman að lokaverkefnum sem valin eru hverju sinni með megináherslur á eina tiltekna listgrein.

Kennslugögn

Í samráði við kennara

Námsmat

Verkefnavinna, símat í áfanga, leiðsagnarmat og sjálfsmat. Öll verkefni í áfanganum verða metin. Lokaverkefni.

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica