Að nemandi læri að hugsa um, skynja og meðhöndla fólk á heildrænan hátt.
Að nemandi læri að skilja samspil tilfinninga, hugsunar og líkama í meðhöndlun vöðvaspennu.
Að nemandi geti beitt nuddaðferð sem grundvallast á flæði og djúpri gagnvirkri skynjun. Hann opni skynsvið sitt fyrir heildarskynjun á nuddþeganum.
Að nemandi læri góða beitingu eigin líkama við nuddbekkinn.
Heildarhyggja, heilsa, heilbrigði, flæði, skynjun,skynsvið, tilfinningar, meðferðarsamskipti, vöðvabrynja, hömlur, traust, hjartalag, eftirgjöf, slökun, hugsun, hlustun, viðhorf, hugmyndir.
Sýnikennsla og nemendur nudda hvor annan í kjölfarið. Umræður um heildræna hugsun.
Kennslubók í heildrænu nuddi sem fæst hjá kennara.
Nudd í tímum metin á önninni. Ritgerð um heildrænt nudd. Viðvera.