Nám

Áfangi

SÁL 313

  • Áfangaheiti: Fötlun, áföll og öldrun
  • Undanfari: SÁL 203/213

Markmið

Nemandi
viti hvað talið er til fötlunar í dag
geri sér grein fyrir að fatlaðir eru ólíkir einstaklingar sem hafa vilja og getu til að nýta sér hæfileika sína, stjórna eigin lífi og eiga rétt á að deila kjörum með ófötluðum
öðlist innsýn í áhrif fötlunar á sjálfsmynd einstaklingsins

fái innsýn í áhrif fötlunar á aðra fjölskyldumeðlimi og hvernig búið er að íslenskum foreldrum sem eiga fötluð börn

öðlist þekkingu á hvernig aðstæður fatlaðra á Íslandi eru hvað varðar þjálfun, nám, heimili, vinnu og tómstundir
fái þjálfun í upplýsingaöflun um viðfangsefni sem varða fatlaða og fái auk þess þjálfun í því að setja fram upplýsingar skipulega í samvinnu við aðra og koma síðan upplýsingum á framfæri munnlega
öðlist þekkingu á hvernig aðstæður fatlaðra á Íslandi eru hvað varðar þjálfun, nám, heimili, vinnu og tómstundir
geri sér grein fyrir helstu áhrifum öldrunar á hugsun og líkama
þekki hvað átt er við með hugtökunum líffræðilegur, sálrænn og félagslegur aldur

fái innsýn í aðstæður og lífsviðhorf aldraðra t.d með viðtölum við aldraða
viti hvað felst í hugtökum eins og áfallastreitu og áfallahjálp
öðlist innsýn í einkenni sorgarferlis

Námsfyrirkomulag

Áætluð yfirferð

Vika 1-10: Fatlanir
Kafli úr Sálfræðibókinni sem heitir þroskafrávik og fötlun bls-143-207. (sleppa bls.165-180)
Umfjöllun um ýmsar tegundir fatlana. Fyrirlestrar og myndbönd
Hlutapróf
Nemendafyrirlestrar og ritgerðir um ýmsar stofnanir, félög og samtök sem þjónusta fatlaða

Vika 11-12: Öldrun
Nokkrir undirkaflar úr Kafla í Sálfræðibókinni sem heitir Efri árin (bls.775-824)
Viðtal við eldri borgara
Umfjöllun um skilgreiningu á öldrun, þjónustu við aldraða, áhrif öldrunar á huga, skapferli o.s.frv
Hlutapróf

Vika 13-14: Áföll
Valdar greinar m.a. úr læknablaðinu
Umfjöllun um áföll, sorgarviðbrögð og áfallahjálp. Fyrirlestrar og verkefni
Hlutapróf

Kennslugögn

Fjölritað efni héðan og þaðan til sölu hjá kennara

Námsmat

Hlutapróf 50%
Samvinna 5%

Nemendafyrirlestur 5%
Ritgerð 15%
Viðtal við eldri borgara 10%
Mætingar  15%

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica