Nám

Áfangi

UTN 292

  • Áfangaheiti: Upplýsingatækni- og tölvunotkun fyrir nýbúa (framhald)
  • Undanfari: Ætlast er til að nemendur taki þennan áfanga í beinu framhaldi af UTN192

Markmið

Að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum við öflun upplýsinga og notkun þeirra við lausn flókinna viðfangsefna. Að nemendur öðlist töluverða færni í almennri tölvunotkun. Í því felst þjálfun í notkun algengasta notendahugbúnaðar ásamt skjalavörslu í tölvum.

Efnisatriði

Internetið og tölvupóstur kynnt og notað jöfnum höndum alla önnina
Windows vinnuumhverfið
Skjalavarsla í tölvum - My Computer og Windows Explorer
Ritvinnslan Word
Framsetningarforritið PowerPoint
Töflureiknirinn Excel
Notkun annars hugbúnaðar sem tengist verkefnum nemenda

Námsfyrirkomulag

Öll námsgögn eru á vefrænu formi og geta nemendur nálgast þau í gegnum kennsluumhverfið Blackboard/WebCT.
Nemendur vinna nokkur verkefni í hverjum efnisþætti fyrir sig undir leiðsögn kennara:
Skilaskylda verkefna er 100% og er nemendum ekki heimilt að taka lokapróf nema þeir hafi lokið við allt námsefnið.
Verkefnaskil fara fram á Netinu, nánar tiltekið í kennsluumhverfinu Blackboard/WebCT.

Kennslugögn

Upplýsinga- og tölvunotkun (UTN) - Kennslubók með verkefnum fyrir byrjendur - Office 2010 - Jóhanna Geirsdóttir.
Námsefni sem vísað er á í Blackboard/WebCT. Námsefni frá kennara sem dreift verður í kennslustundum.

Námsmat

Námsmat er í formi símats:
Verkefnaskil 70%
Lokapróf 30%

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica