Lífsleikni á að hjálpa nemandanum að auka skilning sinn á sjálfum sér og umhverfi sínu og styrkja hann til að takast á við daglegt líf. Áhersla er lögð á að efla sjálfsmynd nemandans og trú á eigin getu en jafnframt gera hann meðvitaðan um þá ábyrgð sem hann hefur í samskiptum við aðra. Í lífsleikni er stuðlað að viðkynningu nemenda í upphafi náms því sterk félagsbönd milli nemenda styrkja þá að takast á við krefjandi nám og leggja einnig grunn að frjóu menntasamfélagi.
Áfanginn er kenndur á haustönn og er þriggja eininga áfangi. Nemendur verða að ná lágmarkseinkunn fyrir alla námsþætti til að ná áfanganum.
Framkoma og þátttaka: Það sem verið er að sækjast eftir varðandi þennan þátt er að nemendur séu virkir á jákvæðan hátt sem þýðir í fyrsta lagi að þeir vinni verkefni í kennslustundum, bæði einstaklingsverkefni og hópverkefni og vinni heimaverkefni. Í öðru lagi að þeir taki þátt í umræðum án þess að grípa mikið fram í eða einoki umræðuna og sýni bæði samnemendum sínum og kennara tilhlýðilega virðingu.
Mæting: Skyldumæting er 85% (heildarmæting) að frádregnum skráðum forföllum, sem þýðir að nemandi er fallinn í áfanganum ef hann er undir þessari mætingu. Raunmæting þarf að vera 70%. Þeir sem ná 85% mætingu fá mismunandi háar einkunnir á eftirfarandi hátt:
99-100%=10, 96-98%=9, 93-95%=8, 90-92%=7, 88-89%=6, 85-87%=5
Í samráði við kennara.
Vinna nemenda alla önnina, verkefnamappa, mæting, framkoma og þátttaka. Ekkert lokapróf er í áfanganaum.