Nám

Áfangi

LIS 103

  • Áfangaheiti: Listir
  • Undanfari: Enginn

Markmið

Áfanginn fjallar um listir í nútímasamfélagi. Með listum er átt við leiklist, tónlist, dans, myndlist, byggingalist, hönnun, bókmenntir, ljósmyndun og kvikmyndir.

Markmið áfangans er að nemendur kynnist helstu listgreinum, eðli þeirra og sögu á eins víðum grundvelli og unnt er, og öðlist víðsýni og þekkingu til að njóta lista.

Áfanginn skiptist í vinnu nemenda og vettfangsferðir. Í áfanganum á að vinna 12 verkefni sem byggjast á lestri, vettvangsferðum, upplýsingaleit á Netinu og heimsóknum til listamanna. Vettvangsferðir (á tónleika, bíó, myndlista- eða leiksýningar) eru farnar á eigin vegum, í hóp undir auglýstri leiðsögn á söfn eða í pantaða heimsókn út í bæ. Nemendur geri sér grein fyrir að þeir bera kostnað af leikhúsferðum, sýningum og tónleikum.

Námsfyrirkomulag

Verkefni eru unnin út frá viðfangsefni vikunnar og er eitt verkefni á viku. Verkefni geta verið fólgin í að:

svara spurningum
búa til samantekt
taka afstöðu og rökstyðja hana
leita upplýsinga

Verkefnum skal skila í tölvupósti til mín greta@fa.is.
Texti skal vera ein til tvær prentaðar prentaðar blaðsíður á 12 punkta letri

Kennslugögn

Kennslugögn eru 12 verkefni. Þeim fylgja vísanir í lesefni á Netinu, í bækur og annað.

Námsmat

Verkefni 100 %

Tengd vefslóð

http://www2.fa.is/deildir/listgreinar/index.htm

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica