Nám

Áfangi

STÆ 103

  • Áfangaheiti: Algebra, jöfnur, rúmfræði og hnitakerfi
  • Undanfari: 7 á samræmdu grunnskólaprófi

Markmið

- Jöfnur – nemar geti leyst uppsettar og óuppsettar jöfnur, einnig jöfnuhneppi
- Prósentur og hlutföll – nemar geti reiknað vexti og vaxtavexti, fundið núvirði og framtíðarvirði
- Rúmfræði – sbr. efnisatriði
- Hnitakerfi – geti unnið með eftirfarandi hugtök: punktar, línur, hallatala og gröf

Efnisatriði

Undirstöðuatriði algebru. Lausnir jafna, óuppsettar jöfnur. Lausnir verkefna og þrauta. Reikniformúlur. Talnahlutföll, skiptireikningur, prósentur, vextir. Frumsendur og óskilgreind hugtök. Beinar og óbeinar sannanir. Saga evklíðskrar rúmfræði. Frumhugtök rúmfræðinnar. Línur og horn í þríhyrningi og hornasumma þríhyrnings. Einshyrndir þríhyrningar. Pýþagórasarregla. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi. Flatarmál og rúmmál. Umritaður og innritaður hringur þríhyrnings. Rétthyrnt hnitakerfi í sléttum fleti, jafna beinnar línu og saga hnitakerfisins.

Kennslugögn

Stuðst er við kennslubókina Stærðfræði 103 eftir Jón Þorvarðarson, Reykjavík 2007 (ljósbrún kápa). Lesnir verða kaflar 2 - 12.

Námsmat

Lokapróf 80%
Annareinkunn 20%

Tengd vefslóð

http://www.fa.is/deildir/Staerdfraedi/stae103/stae103.htm

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica