Nám

Áfangi

DAN 313

  • Áfangaheiti: Danska
  • Undanfari: DAN 203/212

Markmið

Áfanginn fjallar um danskar kvikmyndir og ýmislegt sem þeim tengist. Mismunandi kvikmyndategundir og tæknin sem eru notuð í kvikmyndagerð er skoðuð . Einnig verður fjallað um danska kvikmyndastjóra og leikara. Nemendur eru þjálfaðir í að skilgreina myndir. Lesnar eru ýmsir textar sem tengjast kvikmyndum og mikil áhersla lögð á munnlegu dönsku og gert ráð fyrir því að nemendur geti tjáð sig skýrt um myndirnar. Markmiðið er að nemendur fái innsæi í danska kvikmyndaheiminn. Gert er ráð fyrir að nemendur geti tjáð sig lipurt um skoðunar sínar og undirbúið stuttan fyrirlestur á dönsku. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur geti skilið inntak texta sem fjalla um sérhæft efni. Ætlast er til að nemendur skilji dönsku eins og hún er töluð í daglegu lífi. Einnig er ætlast til að nemendur geti skrifað 2-3 bls. skýrslu um efni sem tengjast kvíkmyndum.

Kennslugögn

Verkefnahefti fæst keypt hjá kennara fyrstu viku annarinnar. 2 danskar kvikmyndir að eigin vali en í samráði við kennara.

Námsmat

Skilaverkefni = 20%
Hópverkefni = 10% (skriflegt og munnlegt)
Lokaverkefni/fyrirlestur = 40% (30% skriflegt, 10% munnlegt)
Mæting = 30%

Mætingarprósenta er mjög stór hluti lokaeinkunnar. Skylt er að skila öllum verkefnum þar sem ekki er lokapróf í þessum áfanga

Tengd vefslóð

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica