Í áfanganum er farið í grundvallaratriði eðlis- og efnafræði ásamt vísindalegum aðferðum og mælieiningum. Einnig er stiklað á stóru í sögu eðlis- og efnafræði. Þá eru kynntir ýmsir orkugjafar svo sem kol, olía, gas, vetni, kjarnorka, vind- og sólarorka ásamt raforku.
Námið skiptist í 3. hluta:
1. inngangur og efnafræði
2. mælieiningar, mælinákvæmni og eðlisfræði
3. orka
Námið byggir á innlögn kennara um einstaka efnisþætti, verkefnavinnu nemenda í tímum og heima sem og framkvæmd og úrvinnslu á verklegum æfingum.
Eðli vísinda, inngangur að eðlis- og efnafræði eftir Guðrúnu Ragnarsdóttur og Kristin A. Guðjónsson
Til lokaeinkunnar verða metin skilaverkefni, hlutapróf, skýrslur úr verklegum æfingum og lokapróf.
Nemendur hafa möguleika á að sleppa við lokapróf ef þeir ná einkunninni 7,5 að meðaltali úr hlutaprófunum þremur.
http://www.fa.is/deildir/Efnafraedi/Index.htm