Farið er yfir grunnatriði um rafmagn. Fjallað verður um rafhleðslur, rafstrauma, spennu, viðnám og helstu mælitæki. Fjallað verður um öryggistæki við notkun rafmagnstækja. Farið verður yfir bylgjufræðina með áherslu á hljóðbylgjur og rafsegulbylgjur (leysigeislar). Leysigeislar sem meðferðarform. Fjallað verður um bylgjujöfnuna, hraða, tíðni og bylgjulengd. Einnig verður fjallað um þau áhrif sem hljóðbylgjur hafa á mannslíkamann. Vettvangsferð á vinnustað þar sem þessi tæki eru notuð.
Eðlisfræði fyrir nuddara eftir Rúnar S Þorvaldsson.
Stefnt að því símat sé notað. Tekið mið af mætingu, prófum og verkefnaskilum.