Í þessum áfanga eru undirstöðuatriði enskrar málfræði æfð. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur eiga að geta skrifað einfalda texta og hafa náð talsverðri færni í málfræðiatriðum, auk þess sem lesskilningur á að vera orðinn umtalsverður eftir áfangann. Einnig er ætlast til þess að nemendur geti tjáð sig um lesefni munnlega. Lögð er áhersla á rauntexta í áfanganum í kennslubók, auk þess sem nemendur fá mikla þjálfun í lestri skáldverka
Nemendur þurfa að vinna jafnt og þétt til þess að komast yfir efni áfangans, og þurfa því að skipuleggja nám sitt vel.
Total English Upper-Intermediate Student's Book (Pearson-Longman)
Macmillan English Grammar in Context (Intermediate with key) With CD-Rom
Ljósrit með smásögum
Lois Duncan: Gallows Hill
Kjörbók: (Veljið EINA af eftirfarandi bókum).
Deborah Ellis: The Breadwinner (Groundwork Books) eða
Nigel Hinton: Buddy (Penguin Plus) eða
Morton Rhue: The Wave (Penguin Books) eða
William Weaver: Memory Boy
Nemendur þurfa að kaupa sérstaka bók til ritunar, annaðhvort litla stílabók eða dagbók. Auk þess verða nemendur að eiga möppu undir verkefni.
Kjörbók 10% Smásögur 10% Lokapróf 80 % (lágmarkseinkunn 5,0)
http://www.fa.is/deildir/Enska/afangar/103/kenns_103.htm