Farið verður í svigrúmablöndun kolefnis, helstu flokka lífrænna efna; alkana, alkena, alkýna, arómata, alkóhól, halíð, ketóna, aldehýð, karboxýlsýrur, estera, etea og amín. Einnig verða skoðuð helstu hvörf þessara efnaflokka. Einnig verður farið í IUPAC-nafnakerfið og byggingarísómerur, rúmísómerur, hendin kolefni og hendnar sameindir og Fischer-varpanir skoðaðar. Þá verður farið í uppbyggingu sykra, lípíða, og próteina.
Námið byggir á innlögn kennara um einstaka efnisþætti, verkefnavinnu nemenda í tímum og heima sem og framkvæmd og úrvinnslu á verklegum æfingum.
Stuðst er við bókina Lífræn efnafræði eftir Gísla Ragnarsson (Iðnú, 1996), auk viðbótarefnis frá kennara
Til lokaeinkunnar verða metin skilaverkefni, hlutapróf, skýrslur úr verklegum æfingum og lokapróf.
http://www.fa.is/deildir/Efnafraedi/Index.htm