Nám

Áfangi

ENS 303

  • Áfangaheiti: Flóknir textar og bókmenntir
  • Undanfari: ENS 203 eða ENS 212

Markmið

Nemendur geti lesið fjölbreytta bókmenntatexta og beitt grunnhugtökum í bókmenntafræði í greiningu þeirra. Nemendur skilji mismunandi ensku sem töluð er við mismunandi aðstæður og geti tjáð sig bæði í orði og riti með talsverðri færni.

Námsfyrirkomulag

ENS 303 er aðalmarkmið áfangans að nemendur öðlist aukinn orðaforða, þar sem nemendur eiga að hafa tileinkað sér undirstöðuþekkingu á málfræði og stafsetningu í fyrri áföngum. Þau orð sem nemendur þurfa að tileinka sér eru í Innovations í köflum 1-12 ásamt greinum í Taste of English. Nemendur þurfa ekki að leggja á minnið um hvað textarnir fjalla, heldur læra þau orð sem koma fyrir í lestextunum/greinunum. Nemendur þurfa bæði að skilja merkingu orðanna og geta útskýrt þau á ensku.

Í þessum áfanga eru lesnar 4 smásögur, þær heita: First Confession, A Dill Pickle, Last Day of Summer og The Verger. Úr þessum sögum verður próf sem gildir 10% af heildareinkunn.

Nemendur lesa skáldsöguna The Hobbit og er prófað úr henni á önninni. Einnig vinna nemendur hópverkefni sem byggir á sögunni.
Nemendur velja sér eina kjörbók af þeim fjórum sem í boði eru og úr henni verður prófað munnlega.

Kennslugögn

Innovations: Coursebook.
Enskur málfræðilykill (Mál og menning)
The Kiterunner eftir Khaled Houssein

Kjörbók - velja skal eina af eftirfarandi:

Philip Pullman: The Ruby in the Smoke

Michael Conelly: The Overlook  

Sarah and A. Elizabeth Delany: Having our Say (Dell) 

Mitch Albom: The Five People You Meet in Heaven


Námsmat

Nemendur verða að ná lágmarkseinkunn á lokaprófinu, en það byggist m.a. á Innovations, Taste of Enlgish og smásögunum.

Vægi verkefna:
Hlustunarpróf 10%
Skáldsögupróf 10%
Munnlegt próf úr kjörbók 10%
Smásögupróf 10%
Lokapróf 60%

Tengd vefslóð

http://www.fa.is/deildir/Enska/afangar/303/ens303.htm

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica