• Nemendur eiga að hafa aukið lestrarhraða sinn og bætt lesskilning með lestri bókmennta og blaðagreina
• þekkja nokkra helstu skáldsagnahöfunda 20. aldar á enska tungu
• hafa aukið orðaforða sinn verulega
• geta beitt bókmenntahugtökum þeim sem kynnt voru í ENS403.
Lesið er eitt nútíma leikrit og þrjár skáldsögur frá tímabilinu 1918 til dagsins í dag. Þar af eru tvær kjörbækur; önnur frá millistríðsárunum og sú seinni frá því eftir seinni heimsstyrjöldina. Blaða- og tímaritagreinum er dreift á önnina.
Megin viðfangsefni þessa áfanga eru bókmenntir 20. og 21. aldar (frá 1914).
Verkin sem lesin eru gerast líka á 20. öld og varpa þannig ljósi á það tímabil sem þau gerast á.
Lögð er áhersla á mikinn og samfelldan lestur og tíð verkefni sem metin eru til einkunnar.
Willy Russell: Educating Rita
William Golding: Lord of the Flies
Textar og önnur verkefni hjá kennara.
Kjörbók I (1914 - 45) Velja skal eina af eftirfarandi skáldsögum:
George Orwell: Down and Out in Paris and London
Ernest Hemingway: A Farewell to Arms;
Christopher Isherwood: Goodbye to Berlin
E. M. Forster: Passage to India eða aðra skáldsögu í samráði við kennara.
Kjörbók II (eftir 1945) Velja skal eina af eftirfarandi skáldsögum:
Sylvia Plath: The Bell Jar,
Kurt Vonnegut: Hocus Pocus
Toni Morrison: Sula,
Ralph Ellison: Invisible Man
Próf:
Vægi verkefna: Verkefni (kynning og krossapróf) 10%
Educating Rita 10%
Kjörbók I 15%
Lord of the Flies 15%
Kjörbók II 15%
Textar og orðaforði: 35%
http://www.fa.is/deildir/Enska/afangar/503/ens503.htm