Nám

Áfangi

ÍSL 203

  • Áfangaheiti: Mál- og menningarsaga og bókmenntir
  • Undanfari: ÍSL 103
  • Efnisgjald:

Markmið

Við lok áfangans skulu nemendur:

kunna skil á höfuðþáttum í norrænni goðafræði
vita deili á helstu goðum og hlutverki þeirra
þekkja sígildar goðsagnir í norrænni goðafræði
hafa kynnst uppruna íslensku og skyldleika mála og velt fyrir sér orðsmíð og merkingu
kunna skil á helstu breytingum íslensks máls frá öndverðu til okkar daga
vera meðvitaðir um íslenska málstefnu
geta skrifað um hugmyndaheim og þjóðfélagsmynd sem birtist í bókmenntum sem lesnar eru

Tímanum er skipt nokkuð jafnt milli goðafræði, málsögu og bókmennta Fyrst er Snorra-Edda lesin og leyst verkefni, síðan málsagan og bókmenntatextar.

Kennslugögn

Íslenska tvö (Edda útgáfa)
Uppspuni. Nýjar íslenskar smásögur. 2004. Rúnar Helgi Vignisson annaðist útg. Bjartur, Reykjavík. Nemendur lesa og gera verkefni úr sögunum. Verkefnaskil verða í vinnubók, sjá námsáætlun á heimasíðu áfangans.
Nemendur lesa eina kjörbók og taka krossapróf í henni.

Námsmat

Lokapróf 70% og verkefni á önn 30%

Tengd vefslóð

http://www.fa.is/deildir/Islenska2/203/aaetlun/index.html

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica