Nám

Áfangi

FÉL 103

  • Áfangaheiti: Almenn félagsfræði
  • Undanfari: Enginn

Markmið

Markmið áfangans er að nemandinn öðlist nokkurn skilning á félagslegu umhverfi sínu nær og fjær og geti greint samhengi milli daglegs lífs síns og þess sem gerist í samfélaginu. Grunnur er lagður að mikilvægum hugtökum sem eru notuð í umræðu um samfélög og þróun þeirra.
Fjallað verður um menningu, samfélag, fjölskylduna, jafnrétti kynjanna, vinnumarkað og stjórnmál.

Efnisatriði

1. kafli. Um félagsfræði og skyldar greinar
2. kafli Félagsfræðilegar rannsóknaraðferðir
3. kafli. Einstaklingurinn í samfélaginu
4. kafli. Menning
5. kafli. Samfélag
6. kafli. Menning og trú
7. kafli. Fjölskyldan
8. kafli. Mismunandi sambúðarform
9. kafli. Vandamál í umhverfi fjölskyldunnar
10. kafli. Vinna og atvinnulíf
15. kafli. Hvað eru stjórnmál
16. kafli. Kosningar og stjórnmálaflokkar

Námsfyrirkomulag

Nemendur hafa aðgang að kennslugögnum á heimasíðu skólans og í gagnvirku kennsluumhverfi (web ct). Þegar nemendur hafa greitt fyrir áfangann fá þeir sent í tölvupósti lykilorð sem veitir þeim aðgang að verkefnum og kennslugögnum.

Athugið:
Nemendur með lestrar- og skriftarörðugleika (dyslexiu) og aðra skynjunarörðugleika eiga rétt á eftirfarandi þjónustu

Lengri próftíma
Að fá próf lesin inn á hljóðsnældur
Að fá próf lesin fyrir sig
Að fá próf með stærra letri

Kennslugögn

Garðar Gíslason, (2008, 3. útgáfa). Félagsfræði, einstaklingur og samfélag. Mál og menning.

Námsmat

Símatsáfangi. Þeir nemendur sem eru undir 65% raunmætingu í áfanga eru fallnir

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica