Nám

Áfangi

HBF 163

  • Áfangaheiti: Heilbrigðisfræði 163 er áfangi fyrir nemendur í brúarnámi heilbrigðisritara.

Markmið

Að nemendur kynnist sögu heilbrigðisfræðinnar, uppbyggingu heilbrigðiskerfisins og heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi og mikilvægi heilbrigðisfræðslu.  Að efla skilning nemenda á samspili lífsmáta, viðhorfa og umhverfis í viðhaldi heilbrigðis og forvörnum gegn sjúkdómum.  Að nemendur læri um aðferðir og aðgerðir sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma.  Að gera nemendur meðvitaða um ábyrgð á eigin heilsu.  Að nemendur geri sér grein fyrir helstu umhverfisþáttum sem ógna heilbrigði.  Að nemendur verði færir um að afla sér upplýsinga, sem tengjast efni áfangans á veraldarvefnum.

Efnisatriði

Umfjöllun og skilgreining á heilbrigði, hlutverk og söguleg þróun heilbrigðisfræðinnar.  Helstu heilbrigðisvandamál í nútíma þjóðfélagi.  Markmið forvarna og grundvöllur forvarnarstarfs.  Skipulag heilsugæslu á Íslandi og helstu stofnanir innlendar og erlendar sem móta stefnu í forvörnum.  Heilsuefling- og heilbrigðisfræðsla.  Smitsjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, kynfræðsla, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuvarnir, geðvern, beinvernd, mæðra- og ungbarnavernd.

Námsfyrirkomulag

Fjallað er um efnið í fyrirlestrum, verkefnum, hópavinnu og með leit á veraldarvefnum.

Kennslugögn

Bjerva, Haugen og Stordal, 2003.  Líf og heilsa. Þýð: Elísabet Gunnarsdóttir.  Mál og menning.
Fræðslubæklingurinn "Dauðans alvara" eftir Bryndísi Þóru Þórsdóttur og Svövu Þorkelsdóttur.
Jafnframt er nemendum bent á greinar í blöðum, tímaritum og á veraldarvefnum sem tengjast efni áfangans.

Námsmat

Verkefni 40%, miðannarpróf 20% og lokapróf 40%.

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica