Nám

Áfangi

BÓK 303

  • Áfangaheiti: Ársreikningar og skattskil
  • Undanfari: BÓK 203
  • Efnisgjald: 0

Markmið

Nemandi - þekki lög um ársreikninga - þekki reglugerð um framsetningu og innihald ársreikninga - geti sett upp rekstrar- og efnahagsreikning - geti gert sjóðsstreymi eftir beinni og óbeinni aðferð - þekki til fjármagnsstreymis - hafi kynnt sér ársskýrslur fyrirtækja - þekki til áritunar og skýringa í ársreikningi - þekki til umfjöllunar í ársskýrslum um þekkingarverðmæti fyrirtækja; mannauð, skipulagsauð og viðskiptaauð - geti reiknað út og túlkað kennitölur - þekki til takmarka kennitalna - skilji hvernig bókhald getur auðveldað áætlanagerð, stjórnun, eftirlit og ákvarðanatöku - geti lýst helstu þáttum fjárhagsáætlunar og útskýri kosti hennar fyrir fyrirtækið - geti sett upp áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning - þekki grunnhugsun frávikagreiningar við áætlanagerð - geti framkvæmt framlegðarútreikninga - geti gert uppgjör samkvæmt skattalögum - þekki til grunnatriða varðandi útfyllingu skattframtala fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki

Efnisatriði

Rekstrar- og efnahagsreikningar, uppgjör og ársreikningur fyrirtækja, sjóðsstreymi samkvæmt beinni og óbeinni aðferð, áritun og skýringar í ársreikningi, skoðun ársskýrslna, þekkingarverðmæti, fjármagnsstreymi, greining og túlkun ársreikninga með kennitölum, lög um ársreikninga, reglugerð um framsetningu ársreikninga, athugasemdir og lokafærslur, skattauppgjör, fastur kostnaður, breytilegur kostnaður, heildarkostnaður, einingakostnaður, framlegðarútreikningar, áætlanagerð og frávikagreining.

Kennslugögn

Upplýsingar hjá kennara

Námsmat

Námsmat felst annars vegar í skriflegu prófi sem byggir á markmiðum áfangans og hins vegar símati sem m.a. getur falist í skyndiprófum, verkefnum, mati á ástundun og virkni. Mikilvægt er að kanna þekkingu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann.

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica