Að nemendur öðlist töluverða færni í almennri tölvunotkun. Í því felst þjálfun í notkun algengasta notendahugbúnaðar ásamt skjalavörslu í tölvum. Að nemendur kunni að leita heimilda á bókasöfnum og Internetinu og geti beitt faglegum vinnubrögðum við úrvinnslu úr þeim.
Internetið og tölvupóstur kynnt og notað jöfnum höndum alla önnina
Windows vinnuumhverfið
Skjalavarsla í tölvum - MyComputer og Windows Explorer
Ritvinnslan Word
Framsetningarforritið PowerPoint
Töflureiknirinn Excel
Bókasöfn - kynnt verður uppbygging og skráningarkerfi bókasafna, heimildaöflun og meðferð heimilda
Nemendur vinna nokkur verkefni í hverjum efnisþætti fyrir sig undir leiðsögn kennara. Skilaskylda verkefna er 100% og er nemendum ekki heimilt að taka lokapróf nema þeir hafi lokið við allt námsefnið. Verkefnaskil fara fram á Netinu, nánar tiltekið í kennsluumhverfinu Moodle þar sem öll endurgjöf fer fram.
Upplýsinga- og tölvunotkun (UTN) - Kennslubók með verkefnum fyrir byrjendur - Office 2010 - Jóhanna Geirsdóttir.
Námsefni sem vísað er á í Moodle.
Námsefni frá kennara sem dreift verður í kennslustundum.
Námsmat er í formi símats:
Verkefnaskil 70%
Lokapróf 30%