Nám

Áfangi

UTN 102

  • Áfangaheiti: Upplýsingatækni- og tölvunotkun
  • Undanfari: Byrjendaáfangi

Markmið

Að nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum við öflun upplýsinga og notkun þeirra við lausn flókinna viðfangsefna. Að nemendur öðlist töluverða færni í almennri tölvunotkun. Í því felst þjálfun í notkun algengasta notendahugbúnaðar ásamt skjalavörslu í tölvum.

Efnisatriði

Kynning á heimasíðu skólans.
Kynning á vefpósti.
Kynning á Moodle - námsumhverfi, tölvupóstur, umræðuvefur.
Farið yfir My Computer með skipulag harðra diska og/eða staðarneta í huga.
Notkun Word ritvinnslu.
Notkun PowerPoint við glærugerð.
Notkun Excel töflureiknis.
Notkun annars hugbúnaðar sem tengist verkefnum nemenda.

Námsfyrirkomulag

Öll námsgögn eru á vefrænu formi og geta nemendur nálgast þau í gegnum kennsluumhverfið Moodle.
Nemendur eiga að skila verkefnum á tilsettum tíma í Skilamöppur í Moodle.

Kennslugögn

Upplýsinga- og tölvunotkun (UTN) - Kennslubók með verkefnum fyrir byrjendur - Office 2010 - Jóhanna Geirsdóttir.
Námsefni sem vísað er á í Moodle.
Námsefni frá kennara sem dreift verður í kennslustundum

Námsmat

Námsmat er í formi símats:
Verkefnaskil 70%
Lokapróf 30%

 

Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica