Námsaðstoð
Stuðningur við nemendur er margs konar: námsráðgjöf, stuðningur við nýbúa og við nemendur með dyslexíu, stuðningskennsla o.fl.
Á miðvikudögum eftir kennslu eða klukkan 14:40 til 16:00 eru stuðningstímar í íslensku, ritgerðarsmíð og stærðfræði. Nemendur geta komið hvenær sem er á þessum tímum og fengið þá aðstoð sem þeir þarfnast og þurfa ekki að panta tíma. Þessi aðstoð er að sjálfsögðu nemendum að kostnaðarlausu.
Nemendur sem eru í einhverjum 193 áfanga, það er ÍSL, DAN, ENS eða STÆ193, geta valið áfangann Stuðningur við nýnema, SNÝ193. Í þessum áfanga fá nemendur sérstaka aðstoð í námi þess 193-áfanga sem þeir eru í. Þetta eru tvær kennslustundir í viku og nemendur fá einingar fyrir þennan áfanga.
Þá tekur sérkennari í skólanum nemendur í einkatíma ef um það er beðið.
