Náms- og starfsval
Þegar þú tekur ákvörðun um hvaða starf þú vilt stefna á, þarftu að kanna ýmis atriði fyrst. Á Íslandi eru til fleiri en 2000 starfsheiti og því er ekki hlaupið að því að velja. Jafnmikilvæg ákvörðun og val á starfi og námi þarf að vera vel ígrunduð. Til að svo megi verða þarftu eftirfarandi upplýsingar:
- Upplýsingar um störf og atvinnulífið
Náms- og starfsleit er eins og ferðalag. Þegar þú ferð í frí finnurðu fyrst út hvert þú vilt fara og síðan kannarðu hvernig þú kemst þangað.
Það sama á við um starfsval; Fyrst finnurðu starfið sem þú vilt vinna við, síðan hvaða nám þarf til að komast í það starf og að lokum í hvaða skóla/skólum námið er kennt.
