Störf og atvinnulífið
Hér er gott að byrja könnunarleiðangurinn. Ef þú veist ekki um tilvist margra starfa þá komast þau ekki á listann þinn um áhugaverð störf. Kannaðu starfssviðin til að byrja með. Starfssvið eru flokkar skyldra eða tengdra starfa. Hvaða starfssvið höfða til þín? Skoðaðu listann hér fyrir neðan. Flokka má störf á ýmsa vegu þannig að mismunandi getur verið hvað starfssviðin kallast og hvar sum störf eru flokkuð. Mörg störf tengjast fleiri ein einu starfssviði eins og t.d. arkitekt sem gæti bæði verið innan bygginga- og mannvirkjagreina og list- og hönnunargreina.
Hér er dæmi um flokkun starfa í starfssvið:
Bygginga- og mannvirkjastörf Farartækja-, flutnings- og samgöngustörf Heilbrigðisstörf Hótel- og ferðamálastörf Hönnun, lista- og handverksstörf Löggæsla og öryggisstörf Matvæla- og veitingastörf Málm- og véltæknistörf Náttúrunýting og landbúnaðarstörf Snyrti- og útlitsstörf Rafmagns- og tæknistörf Sjávarútvegsstörf Stjórnmála- og stjórnunarstörf Uppeldis-, kennslu og tómstundastörf Upplýsinga-, fjölmiðla- og tölvustörf Viðskipta-, verslunar- og markaðsstörf
Störfin innan hvers starfssviðs eru mismunandi hvað varðar lengd náms sem krafist er. Fyrir sum störf þarf enga formlega menntun, fyrir önnur þarf nám í framhaldsskóla, háskóla eða ákveðin námskeið. Þegar þú veist hvaða svarfssið, eitt eða fleiri, höfða til þín geturðu kannað nánar hvaða störf innan þeirra þér líst vel á. Til að kynna þér betur hvað felst í störfunum geturðu skoðað starfslýsingar á vefsíðum sem náms- og starfsráðgjafar benda á undir liðnum „Gagnlegar slóðir“.
Með því að velja starf ertu ekki að binda þig við það ævilangt frekar en þú vilt. Nú á tímum símenntunar er hægt að bæta við sig námi alla ævi hvort sem það er í sama fagi eða öðru.
