Nám
Prófreglur
-
Nemendur skulu koma stundvíslega til prófs og athuga á auglýsingatöflu skólans hverju sinni hvar þeim er ætlaður staður í prófinu. Nemanda ber að hafa meðferðis persónuskilríki. Nemandi sem kemur meira en 20 mínútum of seint í próf, fær ekki að taka prófið.
-
Prófin standa yfir í 2 klukkustundir. Þau eru samin með það í huga að nemendur ljúki þeim á einni klukkustund og hafi þannig góðan tíma til þess að fara yfir svörin.
-
Nemendur mega ekki yfirgefa prófstofu fyrr en hálf klukkustund er liðin af próftíma og síðan aftur hvenær sem er eftir eina klukkustund. Skilja skal prófverkefni eftir á prófborðum.
-
Kennarar viðkomandi prófa koma tvisvar í prófstofu meðan á prófi stendur. Nemandi sem vill ná tali af kennara sínum, réttir upp hönd og biður yfirsetumann að ná í kennarann ef erindið er mjög brýnt.
-
Veikindi ber að tilkynna skrifstofu skólans fyrir hádegi viðkomandi prófdag. Greiða þarf krónur 1.500 á skrifstofu og koma með kvittun fyrir greiðslu í sjúkrapróf. Nemandi sem mætir í sjúkrapróf án kvittunar, fær ekki að taka próf.
-
Óhjákvæmilegt er að allmargir nemendur þurfi að taka tvö próf á dag. Ef prófin eru á sama tíma skal nemandi snúa sér til skrifstofunni sem skráir viðkomandi í sjúkrapróf í annarri greininni.
-
Nemanda sem verður uppvís að svindli (notar óheimil hjálpargögn, veitir eða þiggur hjálp frá öðrum nemanda), er vísað úr prófi og hann fær falleinkunn.
-
Slökkt skal á farsímum í prófi og þeir mega ekki vera á prófborði.
-
Notkun hvers konar tækja er óheimil nema með samþykki prófstjóra.
-
Nemendur geta haft með sér hressingu, en mælt er með ílátum sem ekki skrjáfar í.
-
Óheimilt er að gefa nemendum upp árangur þeirra á prófi áður en einkunnaafhending fer fram.