Nám

1.1. Ávarp skólameistara

Þann 1. ágúst árið 2008 tóku gildi ný lög um framhaldsskóla. Samkvæmt nýju lögunum eiga framhaldsskólar að setja sér námsbrautalýsingar en í eldri lögum voru þær ákveðnar í aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins. Í 22. gr. framhaldsskólalaganna er fjallað um skólanámskrá, en þar segir:

„Sérhver framhaldsskóli skal gefa út skólanámskrá. Skólanámskrá skiptist í tvo hluta, almennan hluta og námsbrautarlýsingar.
Í almennum hluta skólanámskrár skal gerð grein fyrir starfsemi skólans, helstu áherslum og stefnumörkun, stjórnskipan, námsframboði og skipulagi náms, kennsluháttum, námsmati, stuðningi, ráðgjöf og þjónustu við nemendur, réttindum og skyldum nemenda, foreldrasamstarfi og samstarfi við utanaðkomandi aðila, sjálfsmati og gæðamálum og öðru sem skóli kýs að kveða á um í skólanámskrá. Jafnframt skal skóli gera grein fyrir því hvernig hann uppfyllir skilyrði samkvæmt almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla og markmið laga þessara og reglna sem settar eru með stoð í þeim.
Um setningu námsbrautarlýsinga í skólanámskrá skal farið að ákvæðum 23. gr.
Skólanámskrá skal staðfest af skólanefnd að fenginni umsögn skólafundar, sbr. 5. gr. Skólanefnd fylgist með framkvæmd skólanámskrár."

Haustið 2008 hófum við að endurskoða námskrá skólans og hefur sú vinna staðið yfir óslitið síðan. Aðalnámskrá ráðuneytisins, sem skólanámskrá skal byggja á, var birt í stjórnartíðindum þann 1. ágúst 2011. Það er því tímabært að setja fram drög að skólanámskrá FÁ.

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa unnið að endurskoðun námskrárinnar. Sérstakar þakkir fá Helmut Hinrichsen þróunarstjóri sem hefur stýrt þessari vinnu og Helgi Sæmundur Helgason ritstjóri skólanámskrár. Við leggjum áherslu á að námskráin sé lifandi skjal í stöðugri endurskoðun. Ef það tekst mun námskráin endurspegla skólastarfið á hverjum tíma.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica