2. Menntastefna
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er opinber framhaldsskóli sem hefur starfað í þrjá áratugi. Í skólanum hafa skapast ýmsar hefðir sem ástæða er til að halda í heiðri, til dæmis að því er varðar vinsamleg og ánægjuleg samskipti nemenda og kennara sem m.a. má rekja til þess að frá upphafi hefur nemendahópurinn komið víðs vegar að af landinu, verið á ýmsum aldri og búið yfir margbreytilegri reynslu. Þessari sérstöðu vill skólinn halda. Stefna skólans er að beita heimilislegum aga sem byggist á gagnkvæmri virðingu starfsfólks og nemenda og stuðlar að heilbrigðum metnaði. Skólinn leitast við að skapa mannúðlegt og örvandi umhverfi fyrir nemendur og starfsfólk. Í skólanum á að vera fjölbreytilegt framboð á námsefni og kappkostað að gera það aðlaðandi og aðgengilegt fyrir nemendur með margvíslegum kennsluaðferðum um leið og gerðar eru tilhlýðilegar kröfur.
Skólinn telur mikilvægt að á hverjum tíma sé fylgst með nýjungum í kennslu og menntamálum og að menn séu óhræddir við að taka upp þær nýjungar sem horfa til framfara. Starfsmenn leggja metnað sinn í að námsframboð sé á hverjum tíma í samræmi við kröfur samfélagsins. Námsframboð þarf því að vera fjölbreytt til þess að hver nemandi eigi raunverulega valkosti og notfæri sér þá í samræmi við áhugamál sín og hæfileika. Faglegt nám til framtíðar er stefna skólans.
Nemendur eru hvattir til að tileinka sér góðar námsvenjur og sjálfsaga. Með því móti öðlast þeir sjálfstraust til þess að takast á við ný viðfangsefni hverju sinni og þeir bera ábyrgð á eigin námi.
Skólinn mun áfram leitast við að sinna fjölskrúðugum hópi nemenda í samræmi við námskrá hverju sinni. En samskipti nemenda eru mikilvæg líka og þeir læra hver af öðrum. Skólinn vill stuðla að slíkum kynnum, m.a. með því að stuðla að heilbrigðu og öflugu félagslífi. Nemendur eru á ýmsum aldri og býr hópurinn því yfir mjög fjölbreytilegri reynslu.
Skóli er samfélag manna. Þaðan fara flestir með formleg próf í farteski sínu. Eitt aðalsmerki menntunar er að menn njóta sín betur í lífi og starfi en ella. En jafnframt stuðlar menntun að því að fólk nýtur betur þeirra verðmæta sem umhverfið býður upp á. Skólinn vill stuðla að því að nemendur verði færari um að njóta lífs og lista í samfélagi sínu að námi loknu.
Í starfi sínu mun skólinn leitast við að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi, efla læsi þeirra í víðasta skilningi þess orðs, lýðræðisvitund, jafnréttishugsjón, menntun til sjálfbærni og sköpunaranda.
