Nám

Endurskoðun almenns hluta skólanámskrár


Ritnefnd hefur skipt verkum á milli sín. Í ritnefnd eru Gísli Ragnarsson, Ólafur H. Sigurjónsson, Helmut Hinrichsen, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, Guðrún Narfadóttir, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Elín Vilhelmsdóttir og Hrönn Baldursdóttir. Þeim til aðstoðar taka þátt í endurskoðun afmarkaðra þátta: Bryndís Valsdóttir endurskoðar kaflann um siðareglur og skólareglur um umgengni, Arngrímur Þ. Gunnhallsson semur lýðheilsustefnu og endurskoða kaflann um forvarnir, Róbert Ö. Ferdinandsson endurskoðar jafnréttisstefnu, Heiða Sturludóttir endurskoðar umhverfis- og samgöngustefnu, Ásta B. Sveinbjörnsdóttir semur nýjan kafla um fjölmenningastefnu, Margrét Gestsdóttir endurskoðar kaflann um námsmat, Kristín Björgvinsdóttir endurskoðar kaflann um bókasafn og upplýsingamiðstöð, Inga Lúthersdóttir endurskoða kaflann um áfallaáætlun og heilsugæslu, Eiríkur Brynjólfsson semur eineltisstefnu og Hólmfríður J. Ólafsdóttir endurskoðar kaflann um þjónustuver og tölvustofur. Kennslustjórar endurskoða markmið brauta og stýra vinnu við að endurskoða brautarlýsingarnar. Nánar er verkaskiptingin lýst í efnisyfirliti neðst í þessu skjali.

Ritstjóri skólanámskrár er Helgi Sæmundur Helgason, íslenskukennari. Helmut Hinrichsen, þróunarstjóri, heldur utan um verkið og kalla ritnefnd saman á fundi.

Ritnefndin leggur til að nota skólanámskrá Menntaskólans Borgarfjarðar sem fyrirmynd við uppsetningu nýrrar skólanámskrár FÁ. Einnig leggur ritnefndin til að kaflarnir í nýju skólanámskrá verði stuttir og almenns eðlis, þar sem skyrt koma fram meginmarkmið skólans, en krækjur vísa í ítarlegri áætlanir, lýsingar, deilimarkmið o.fl., sem verða í sífelldri endurskoðun. Krækja í sniðmát er hér fyrir neðan.

Við endurskoðun á skólanámskrá er gott að hafa eftirfarandi gögn til hliðsjónar:

1. Skólanámskrá FÁ frá 2002

2. Aðalnámskrá framhaldsskóla

3. Skólanámskrá Menntaskólans Borgarfjarðar

4. Niðurstöður skólafundar frá 25. febrúar 2011

5. Niðurstöður skólafundar frá 5. febrúar 2010

6. Niðurstöður þjóðfundar frá 18. maí 2010

7. Sniðmát fyrir nýja skólanámskrá FÁ



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica