Nám

Eineltisáætlun

Einelti er endurtekin ótilhlýðileg og ámælisverð háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að.

Eineltisáætlun skólans er tvenns konar. Annars vegar einelti sem lýtur að nemendum og hins vegar sem varðar starfsmenn. Þessi hluti áætlunarinnar varðar nemendur.

Eineltisteymi

Í skólanum verður starfandi eineltisteymi sem hefur það hlutverk að safna saman upplýsingum, afla sér sérfræðiþekkingar og miðla henni áfram og vinna að forvörnum gegn einelti með því að skipuleggja fræðslufundi og kynningar.

Eineltisteymið er ráðgjafi í eineltismálum og hefur eftirlit með því að úrlausnum sé fylgt eftir.

Skólastjórn skipar eineltisteymið úr röðum starfsmanna til tveggja ára. Eineltisteymið velur sér formann sem ber ábyrgð á starfsemi þess og kallar teymið saman í byrjun annar og eftir þörfum. Teymið setur sér vinnureglur sem meðal annars felur í sér tímaramma, eftirfylgd o.s.frv.

Teymið vinnur ekki endilega alla vinnuna heldur hefur umsjón með henni og ber ábyrgð á lausn málsins. Teymið getur falið öðrum starfsmönnum gagnaöflun og viðtöl eftir eðli máls.

Formaður teymisins heldur utan um gögn sem varða eineltismál sem upp kunna að koma. Hann á einnig að semja skýrslu um stöðu eineltismála í lok hvers skólaárs.

Viðbrögð við einelti

Þegar nemandi verður fyrir einelti eða einhver verður var við einelti skal hann snúa sér hið fyrsta til næsta trúnaðaraðila sem getur verið skólameistari, aðstoðarskólameistari, umsjónarkennari, kennslustjóri, forvarnarfulltrúi, námsráðgjafi eða einhver annar sem viðkomandi ber traust til.

Trúnaðaraðilinn tilkynnir atvikið til eineltisteymis og fer þá eftirfarandi viðbragðsáætlun í gang.

 

Viðbragðsáætlun

  • Fara ber yfir málið í ró og næði með þolandanum og fullvissa hann um að allt verði gert sem unnt er til að leysa málið.
  • Nauðsynlegt er að afla gagna. Mikilvægt er að leita upplýsinga um tímasetningar og fá fram gögn ef einhver eru, s.s. tölvupósta, SMS-skilaboð eða annað.
  • Ræða þarf við meintan geranda sem og aðra sem geta veitt upplýsingar um málið, t.d. samnemendur, kennara og aðra starfsmenn.
  • Varast þarf að draga fleiri inn í málið en nauðsynlegt er og tryggja fljóta afgreiðslu, helst innan 10 daga.
  • Sé þolandi og/eða gerandi undir 18 ára aldri ber að hafa samband við forráðamenn.
  • Upplýsingar úr viðtölum og aðrar upplýsingar sem fengnar eru munnlega ber að skrá. Gæta skal þess að upplýsa þolanda um framvindu málsins eins og kostur er á meðan unnið er að lausn þess.
  • Þegar atvik hafa verið upplýst og talið er að meintur gerandi hafi beitt þolanda einelti þarf að huga að afleiðingum og lausn málsins.
  • Mikilvægt er að gerandi fái ávallt leiðsögn og aðvörun – eftir atvikum.
  • Málinu skal fylgt eftir og rætt við aðila þess að ákveðnum tíma liðnum. Tímamörk skulu skráð. Fylgjast skal með samskiptum aðila málsins.
  • Láti gerandi ekki af eineltinu leiðir það til áminningar og hugsanlega til brottreksturs.

           

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica