Nám

3.5. Starfslýsingar

Skólameistari

  • Skólameistari veitir skólanum forstöðu sbr. reglugerð nr. 371/1998 í Stjtíð. B
  • Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að starfsemi hans sé í samræmi við lög og reglugerðir, námsskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma
  • Ber ábyrgð á að fjárhagsáætlun skólans sé fylgt

Aðstoðarskólameistari

  • Er staðgengill skólameistara
  • Sér um agamál nemenda og starfsmanna
  • Sér um færslu og viðhald eftirlitsspjaldskrár nemenda og starfsmanna
  • Hefur yfirumsjón með framkvæmd skólasóknaregla
  • Ber ábyrgð á launamálum starfsmanna
  • Ber ábyrgð á kennsluskiptingu
  • Ber ábyrgð á námsframboði
  • Hefur yfirumsjón með húsnæðis- og byggingarmálum
  • Hefur yfirumsjón með félagsmálum nemenda

Áfangastjóri

  • Hefur umsjón með námsferli og námsframvindu nemenda
  • Ber ábyrgð á próftöflugerð og framkvæmd prófa
  • Hefur yfirumsjón með námsmati ásamt kennslustjórum og námsráðgjöfum
  • Ber ábyrgð á stundatöflugerð nemenda og kennara
  • Ber ábyrgð á skráningu einkunna í ferilskrá nemenda og prófskírteinum við námslok
  • Fylgist með ákvörðun um námslok ásamt kennslustjórum
  • Hefur yfirumsjón með innritun nemenda í samráði við kennslustjóra og námsráðgjafa
  • Hefur yfirumsjón með skráningu fjarvista nemenda

Fjarnámsstjóri

  • Ber ábyrgð á allri starfsemi fjarnáms
  • Skipuleggur vefsíðu fjarnáms
  • Ber ábyrgð á framboði fjarnáms
  • Sér um kennsluskiptingu og þjálfun kennara
  • Sér um samskipti við grunnskóla
  • Ber ábyrgð á þróun fjarnáms
  • Ber ábyrgð á endurmenntunarnámskeiðum fyrir fjarnámskennara

Þróunarstjóri

  • Hefur yfirumsjón með endurmenntunarnámskeiðum á vegum skólans
  • Ber ábyrgð á innra mati skólans
  • Hefur yfirumsjón með rafrænni stjórnsýslu
  • Hefur yfirumsjón með erlendum samstarfsverkefnum
  • Ber ábyrgð á heimasíðu skólans
  • Ber ábyrgð á að áfangalýsingar og kennsluáætlanir séu aðgengilegar á heimasíðu skólans
  • Ber ábyrgð á bókalistum í samráði við kennslustjóra og fagstjóra
  • Ber ábyrgð á tækjakaupum

Fjármálastjóri

  • Hefur umsjón með fjármálum skólans
  • Ber ábyrgð á fjárhagsáætlun
  • Ber ábyrgð á móttöku og bókun reikninga
  • Ber ábyrgð á innheimtu skólagjalda
  • Ber ábyrgð á greiðslukvittunum

Kennslustjórar

  • Hafa eftirlit með brautskráningarnemum, skráningu einkunna þeirra og endurtökuprófum
  • Fylgjast með ákvörðun um námslok nemenda
  • Hafa umsjón með útskriftarnemum og skipuleggja kennslu í lokaáfanga
  • Hafa umsjón með áfangalýsingum og námsáætlunum ásamt fagstjórum
  • Hafa umsjón með bókalistum ásamt fagstjórum
  • Vinna að þróunarstarfi
  • Taka saman ársskýrslu um starfsemi viðkomandi brautar
  • Hafa yfirumsjón með faglegri umræðu
  • Hafa yfirumsjón með leiðsögn nýja kennara[1]
  • Hafa yfirumsjón með endurmenntun á sinni braut
  • Hafa yfirumsjón með námsframboði sérgreina brautarinnar
  • Meta umsóknir um kennarastöður
  • Sjá um starfsviðtöl[2]

    Auk þess er hlutverk kennslustjóra starfsmenntabrauta:

  • Bera faglega ábyrgð á starfsmenntun
  • Sjá um innritun á starfsmenntabrautir
  • Meta fyrra nám nemenda
  • Sjá um og bera ábyrgð á vistun nema í starfsþjálfun og samstarf við vinnustaði
  • Bjóða upp á viðtöl við nemendur

Fagstjórar

  • Hafa umsjón með gerð kennsluáætlana, vali á námsefni, námsmati og samvinnu kennara í grein sinni eða greinum
  • Sjá um kennsluskiptingu í sinni grein í samráði við kennara deildarinnar
  • Setja nýja kennara inn í störf og vera þeim til ráðuneytis um kennsluhætti
  • Veita upplýsingar um nám, kennsluefni og kennsluhætti
  • Taka saman ársskýrslu um starfsemi deildarinnar
  • Hafa umsjón með áfangalýsingum og kennsluáætlunum áfanga deildarinnar
  • Hafa umsjón með bókalistum áfanga deildarinnar
  • Meta umsóknir um kennarastöður í samráði við yfirstjórn skólans
  • Hafa umsjón með þróunarstarfi og innra mati á sínu sviði
  • Skipuleggja námskeið í sinni grein í samráði við kennara deildarinnar

Náms- og starfsráðgjafar

  • Aðstoða nemendur við gerð námsáætlunar
  • Veita nemendum persónulega ráðgjöf
  • Liðsinna kennurum vegna námsvanda nemenda
  • Eru umsagnaraðilar vegna fjarvista nemenda
  • Hafa samband við forráðamenn nemenda sé þess þörf
  • Hafa eftirlit með umsjónarstarfi
  • Skipuleggja umsjónarstarf
  • Sjá um viðtöl við umsækjendur um skólavist
  • Fylgjast með og aðstoða við innritun nemenda
  • Hafa yfirumsjón með námskynningum í skólum
  • Annast ráðgjöf um náms- og starfsval
  • Gæta fyllsta trúnaðar í samskiptum við nemendur


[1] Kennslustjórinn hittir nýja kennara í byrjun annar og kynnir skólann og starf á brautinni. Hann veitir leiðsögn um nám og kennslu í greininni og mætir í a.m.k. eina kennslustund fyrstu tvær annir og ræðir þessar kennslustundir við nýja kennarann.

[2] Starfsviðtöl byggjast á niðurstöðum kennslumats sem eru til þess ætlast að bæta kennslu.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica