3.12. Umhverfis- og samgöngustefna
Umhverfisstefna
Mikilvægt er að skólar miðli til nemenda þeim gildum sem samfélagið vill að séu ríkjandi á hverjum tíma. Því er mikilvægt að skólar landsins sinni umhverfismálum af alúð og einlægni. Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur það hlutverk sitt alvarlega og vill sýna nemendum og öðrum sem að skólastarfinu koma, gott fordæmi við rekstur og stjórnun skólans. Skólinn mun hafa umhverfissjónarmið og verndun náttúrunnar að leiðarljósi jafnt í daglegum athöfnum og í stefnumótun til framtíðar. Vinna innan skólans mun taka tillit til sjálfbærrar þróunar þegar því verður við komið.
Smelltu á krækjuna til að fara á umhverfissíðuna.
Samgöngustefna
Vegna aukins umferðarþunga í borginni, aukins svifryks, og alþjóðlegs átaks til að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda hvetur FÁ nemendur jafnt sem starfsmenn til að nota annan ferðamáta en einkabílinn til að sækja vinnu eða skóla. Í ljósi þess og að skólinn er heilbrigðisskóli, er eðlilegt að hann sýni gott fordæmi í að breyta ferðavenjum og reyni að stemma stigu við vaxandi mengun sem er orðin að einu alvarlegasta heilbrigðisvandamálinu í dag. Enn fremur fylgir því kostnaður fyrir skólann að bjóða upp á og halda við bílastæðum fyrir einkabílinn og er eðlilegt að hvatningarkerfi sé komið á laggirnar til að minnka bílastæðaþörf skólans.
Smelltu á krækjuna til að lesa nánar um samgönguáætlun skólans.
