6. Þjónusta við nemendur
6.1. Umsjónarkerfi
Meginmarkmið umsjónarstarfsins eru:
- að stuðla að góðu námsgengi nemenda í skólanum og koma þannig í veg fyrir brotthvarf þeirra úr skóla
- að stuðla að góðri líðan nemenda í skólanum m.a. með því að byggja upp jákvæðan starfsanda
- að miðla upplýsingum til umsjónarhópsins
Hlutverk umsjónarkennara er að:
- fræða nemendur um skólann, s.s. starfsfólk og starfssvið þeirra, starfshætti skólans, reglur, námsbrautir og valgreinar
- fylgjast með ástundun og gengi umsjónarnemenda sinna, veita þeim persónulegt aðhald og stuðning og koma ábendingum um námsvanda á framfæri við náms- og starfsráðgjafa
- aðstoða nemendur við námsval og vinna námsáætlun næstu annar með þeim
- fylgjast með mætingum nemenda
- að hitta hvern umsjónarnemenda a.m.k. einu sinni á önn í einkaviðtali
- vera í tengslum við forráðamenn nemenda (undir lögaldri) ef með þarf
- vera talsmaður nemenda gagnvart stjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans
Nánari upplýsingar um umsjónarkerfið eru á heimasíðu skólans undir Skólinn - Umsjónarkerfi.
Starfshópur vinnur að endurskoðun umsjónarkerfis.
Smelltu á Endurskoðun á umsjónarkerfi til að fygjast með starfi hópsins og lesa fundargerðir.
(Síðast uppfært 2.11.2012)
______________________________________________________________________
