4.4. Inntökuskilyrði
Inntaka nemenda á námsbrautir framhaldsskóla ákvarðast af þeim kröfum sem gerðar eru í viðkomandi námi. Þess vegna skiptir miklu máli að nemendur geri sér sem besta grein fyrir hvaða nám þeir vilja helst stunda og undirbúi sig eins vel og þeir geta í grunnskóla fyrir það nám sem er í vændum.
Inntökuskilyrði á bóknámsbraut
- Umsækjendur hafi náð lágmarkseinkunninni 5 á grunnskólaprófi í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.
- Umsóknir 18 ára og eldri eru háðar mati stjórnenda.
Inntökuskilyrði á starfsnámsbraut
- Umsækjendur hafi náð lágmarkseinkunninni 5 á grunnskólaprófi í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.
- Umsóknir 18 ára og eldri eru háðar mati hvers kennslustjóra.
Inntökuskilyrði á almenna námsbraut
Nemendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla en þurfa ekki að fullnægja skilyrðum fyrir inntöku á bóknámsbrautir.
Inntökuskilyrði á framhaldsskólabraut
Nemendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla en þurfa ekki að fullnægja skilyrðum fyrir inntöku á bóknámsbrautir eða almenna námsbraut.
(Síðast uppfært 2.11.2012)
