4.5.3. Félagsfræðabraut
Félagsfræðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla fylgir almennum lokamarkmiðum bóknámsbrauta. Að loknu námi á brautinni skulu nemendur vera undirbúnir fyrir frekara nám í félagsvísindum og skyldum greinum auk þess að vera undir það búnir að taka þátt í atvinnulífinu. Þeir eiga að hafa á valdi sínu öguð og sjálfstæð vinnubrögð og geta beitt gagnrýnni hugsun. Þeir skulu vera læsir á sögu, menningu og siði samfélaga. Stúdentspróf á félagsfræðabraut felur í sér 140 eininga nám. Kjarni brautarinnar er 98 einingar, kjörsvið 30 einingar og val 12 einingar.
Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu félagsfræðabrautar.
(Síðast uppfært 2.11.2012)
