4.5.14. Heilbrigðisritarabraut
Nám á heilbrigðisritarabraut er viðurkennt starfsnám. Brautin er 80 einingar og skiptist í bóklegt nám og verknám sem fram fer á heilbrigðisstofnunum. Bóklegt nám er 68 einingar og skiptist í almenna áfanga, heilbrigðisgreinar og sérgreinar heilbrigðisritarabrautar. Tólf vikna verknám er metið til 12 eininga í námskrá. Nám á heilbrigðisritarabraut tekur að jafnaði fimm annir. Eftir og/eða samhliða námi á heilbrigðisritarabraut er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs, sem tekur að meðaltali þrjár annir til viðbótar. Inntökuskilyrði í heilbrigðisritaranám er grunnskólapróf.
Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu heilbrigðisritarabrautar.
(Síðast uppfært 2.11.2012)
