4.5.13. Læknaritarabraut
Nám á læknaritarabraut er viðurkennt starfsnám sem veitir löggild starfsréttindi. Brautin er 81 eining, sem skiptist í 65 eininga bóklegt nám og 16 vikna starfsþjálfun á heilbrigðisstofnun sem metin er til 16 eininga. Læknaritarar starfa mjög víða innan heilbrigðiskerfisins. Til að hefja nám á læknaritarabraut er krafist stúdentsprófs eða sambærilegrar menntunar og/eða starfsreynslu. Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg svo og færni í vélritun. Þeir sem ekki uppfylla fyrrgreind inntökuskilyrði geta tekið 70 eininga aðfararnám.
Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu læknaritarabrautar.
