4.5.15. Nám í fótaaðgerðafræði
Námsbraut í fótaaðgerðafræði er starfrækt í samvinnu við Fótaaðgerðaskóla Íslands. Námið er viðurkennt starfsnám á heilbrigðissviði og veitir löggild starfsréttindi. Námsbraut í fótaaðgerðafræði er samtals 125 einingar sem skiptist í 23 einingar í almennum greinum, 42 einingar í almennum heilbrigðisgreinum og 60 einingar í sérgreinum fótaaðgerðafræði, þar með talið 12 eininga vinnustaðanám. Inntökuskilyrði á námsbraut í fótaaðgerðafræði er grunnskólapróf, en til að hefja nám í sérgreinum í Fótaaðgerðaskóla Íslands þarf nemandi að hafa náð 18 ára aldri. Nám í fótaaðgerðafræði tekur að jafnaði sex til sjö annir.
