Nám

4.5.16. Námsbraut fyrir heilsunuddara

Námsbraut fyrir heilsunuddara er samtals 120 einingar og skiptist í bóklegt nám, verknám og starfsþjálfun. Bóklega námið er 67 einingar og skiptist í almennar greinar, heilbrigðisgreinar og sérgreinar brautar. Verknámið er 33 einingar og starfsþjálfun 20 einingar. Með því að bæta við tilskildum áföngum er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs af námsbrautinni. Inntökuskilyrði á námsbraut fyrir heilsunuddara er grunnskólapróf. Heilsunuddarar hafa enn sem komið er ekki lögverndað starfsheiti en stöðugt er unnið að því að starfið hljóti viðurkenningu heilbrigðisráðuneytisins sem löggild heilbrigðisgrein.

Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu námsbrautar fyrir heilsunuddara.


(Síðast uppfært 2.11.2012)

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica