4.5.8. Sjúkraliðabraut
Nám á sjúkraliðabraut er viðurkennt starfsnám sem veitir löggild starfsréttindi. Brautin er 120 einingar og skiptist í bóklegt nám og vinnustaðanám á heilbrigðisstofnun. Bóklegt nám er 89 einingar og skiptist í almenna áfanga, heilbrigðisgreinar og sérgreinar sjúkraliðabrautar. Vinnustaðanámið er 31 eining og skiptist í níu vikna verknám og sextán vikna starfsþjálfun á heilbrigðisstofnun. Nám á sjúkraliðabraut tekur að jafnaði þrjú ár. Eftir og/eða samhliða sjúkraliðanámi er hægt að ljúka viðbótarnámi til stúdentsprófs, sem tekur eina til tvær annir til viðbótar. Inntökuskilyrði í sjúkraliðanám er grunnskólapróf.
Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu sjúkraliðabrautar.
(Síðast uppfært 2.11.2012)
