Nám

4.5.6. Viðskipta- og hagfræðibraut

Viðskipta- og hagfræðibraut Fjölbrautaskólans við Ármúla fylgir almennum lokamarkmiðum bóknámsbrauta. Að loknu námi á brautinni er ætlast til að nemendur hafi góða undirstöðu í viðskipta- og hagfræðigreinum, geti unnið sjálfstætt og hafi auk þess öðlast góðan grunn í stærðfræði og tungumálum. Brautin býr nemendur undir störf í atvinnulífinu og háskólanám í viðskiptagreinum, hagfræði og skyldum greinum. Stúdentspróf á viðskipta- og hagfræðibraut felur í sér 140 eininga nám. Kjarni brautarinnar er 98 einingar, kjörsvið 30 einingar og val 12 einingar.

Nánari upplýsingar og brautarlýsing eru á vefsíðu viðskipta- og hagfræðibrautar.



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica