4.5.7. Viðbótarnám til stúdentsprófs
Nemendur sem ljúka skilgreindu starfsnámi á framhaldsskólastigi eiga kost á viðbótarnámi til stúdentsprófs. Til þess að fá starfsnám auk viðbótarnáms viðurkennt til stúdentsprófs skal heildarnám nemenda verða eins og tilgreint er hér að neðan.
Eftir þriggja til fjögurra ára starfsnám þarf að bæta við námi í almennum bóklegum greinum (íslenska 15 einingar, enska 12 einingar, stærðfræði 6 einingar svo og 12 einingar í tungumálum, náttúrufræðigreinum og stærðfræði eða samfélagsgreinum að eigin vali).
Eftir tveggja til þriggja ára starfsnám þarf að bæta við námi í almennum bóklegum greinum (íslenska 15 einingar, enska 15 einingar, saga 6 einingar, náttúruvísindi 9 einingar, stærðfræði 6 einingar, íþróttir 8 einingar svo og 12 einingar í þriðja tungumáli eða stærðfræði og 15 einingar í samfélagsgreinum, náttúrufræðigreinum eða íþróttagreinum að eigin vali).
(Síðast uppfært 2.11.2012)
