Blackboard (WebCT)

Blackboard (WebCt)

Kennslukerfið sem notað er í fjarnáminu heitir Blackboard (WebCt) og þið skráíð ykkur inn hér neðst á þessari síðu. Lesið vel þær upplýsingar sem eru hér að neðan áður en þið skráið ykkur inn.

Til að fara í kennsluumhverfið Blackboard (WebCt) þarf að slá inn notandanafn (WebCT ID) sem samanstendur af: fa og fyrstu 8 stöfum kennitölu nemanda (t.d. fa01010122) og svo lykilorðið (Password) sem samanstendur af sex stafa orði og einum tölustaf. Smelltu hér ef þú vilt sjá leiðbeiningar um hvernig þú skráir þig inn.

Þeir sem eru að skrá sig inn í fyrsta sinn þurfa að kanna uppsetning vefskoðara (Browser Check): Kerfið er öflugt og um leið kröfuhart varðandi uppsetningu vefskoðara eins og Internet Explorer. Ef vefskoðarinn er ekki rétt stilltur getur reynst erfitt að lesa póst og sækja og senda viðhengi í Blackboard (WebCt).
Vefskoðarastillingar: Til að athuga hvort hvort allt sem þarf sé fyrir hendi með því að smella á Check Browser á upphafssíðu í Blackboard (WebCt).

Eftirfarandi vefskoðara má nota með Blackboard (WebCt).

Windows: Internet Explorer 6, Internet Explorer 7, Netscape 7.2, AOL 9, Mozilla 1.7, Firefox 1.0 og Firefox 1.5.

Mac: Mozilla 1.7, Firefox 1.0, Safari 1.2, 1.3 og 2.0.

Java: Til að uppæra Java er best að opna Control Panel, finna þar Java og opna það. Velja spjald sem heitir Update og velja hnappinn Update Now. Staðfestið síðan Java Security Certificate með því að smella á Run.Að uppfærslu lokinni er ráðlegt að endurræsa tölvuna. Smelltu hér til að lesa þig betur til um þetta.

Vandamál við innskráningu: Ef lykilorðið virkar ekki þarf að hafa samband við fjarnámsstjóra eða skrifstofu FÁ.

Algengar spurningar: Athugið að undir Algengar spurningar hér til vinstri hafa verið settar inn leiðbeiningar við algengustu vandamálum. Þar eru einnig svör við helstu spurningum er varða Blackboard (WebCt.)

Pop Up gluggar: Nauðsynlegt að leyfa sprettiglugga til að geta notað Blackboard (WebCt). Það er gert í Tools - Pop-up Blocker - Turn on Pop-up Blocker og stillið á Always allow Pop-ups from This Site.
Smelltu hér til að tengjast Blackboard (WebCt)

 


Stoðflokkar



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.