Áfangi
FAL 102
- Áfangaheiti: FALÆ3OB04
Markmið
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- beygingum nafnorða og lýsingarorða og samhengi þessara orða í sambeygingu
- málfræðihugtökum í framsetningu líffæraheita, sjúkdómaheita og aðgerðarheita
- orðmyndun og þeim reglum sem um hana gilda í læknisfræðilegri latínu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota fagmálsorðabók sér til gagns
- greina orðflokka af öryggi og flokka beygingu orða af orðabókarmynd
- þekkja algeng orðmyndunarviðskeyti og merkingu þeirra á viðkomandi orðflokkum
- nota töluorð og tímaviðmiðanir í fagmálinu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lesa úr sjúkdómagreiningum, aðgerða- og líffæraheitum og skýrt málfræðilegt samhengi innbyrðis í þeim
- lesa úr grunnorðaforða lyfjalatínu
- nota sér til gagns þann orðaforða sem í námsefninu er og nota hann til skilnings á þeim þáttum sem að höndum ber í öðru námi og starfi
Efnisatriði
Í áfanganum er fjallað um latínu, klassískt fagmál heilbrigðisstétta, þannig að nemendur geti gert skil á því máli og bjargað sér með orðabók og öðrum hjálpargögnum þegar á þarf að halda. Fjallað er um sérhæfðan fagmálsorðaforða í latínu. Lögð er áhersla á helstu hugtök líffærafræði, sjúkdómafræði og aðgerða ásamt því að veitt er innsýn í orðaforða lyfjalatínu. Fjallað er um málfræði latínu með áherslu á orðmyndun og beygingar.
Námsmat
Gagnvirk próf og æfingar, lokapróf úr afmörkuðu efni.