Miðnæturganga
á Eiríksjökul
Farið
var í miðnæturgöngu á Eiríksjökul miðvikudagskvöld, 24. júní. Þetta var
fimmta miðnæturganga gönguhópsins Garps frá því að mælingar hófust, en
þátttakan var lítil í þetta skipti.
Þeir sem
fóru voru Helmut, Jóhanna og Gunnar Geir.
Göngulengd
Heildarvegalengdin
var áætluð 24 km og reyndist sú tala vera rétt eða nákvæmlega 24,4 km.
Áætlaður heildargöngutími var u.þ.b. 12 klst. og reyndist hann vera styttri í
samræmi við hópastærð eða 10 kl. og 25 mín.
Göngufæri
Brattar
skriður upp á brún stapans, síðan jökulurð með aur- og krapableytu og loks
yfir snjó á hallalitlum og sprungulausum jökli.
Löng og á köflum þreytandi leið með frábært útsýni.
Veður
Eins og best er á kosið: heiðskírt og
logn og útsýn yfir allt landið.
Sólin settist bak við fjöllin norðan lands um kl. 1.15 og reis hún aftur kl.
2.15.
Akstursleiðin
Akstursleiðin norðan Strúts reyndist mikil torfæra og
tók jafnlangan tíma að aka yfir hraunið og að ganga. Frá Brunnum við veginn að
Surtshelli vorum við 2 klst. að aka að tjaldstæðinu.
Í staðinn fyrir að tjalda við Torfabæli setjum við upp tjöldin aðeins
norðanlegra við upptök Hvítár. Þar snæddum við kvöldverð við mikinn fagnað
mývargs og undirbjuggum okkur undir gönguna.
Lögðum við af stað frá tjaldstæðinu
kl. 18.30.
Þrátt fyrir Garmin-leiðsögutæki villtumst við fyrst – eins og sjá má á
myndinni í Google Earth, en áttuðum okkur fljótt á mistökum okkar.
Þetta þýddi samt að við þurftum að fara yfir 100 m hæðametra niður aftur sem
við höfðum klifið upp brattar skriður.
Útbúnaður
Nauðsynlegt er að klæðast hlýjum og skjólgóðum fötum,
síðum ullarnærfötum og vind- og vantnheldum jakka og buxum. Bómullabolir eru
bannaðir.
Jakki úr vind- og vatnsheldu öndunarefni
Vatnsheldar regnbuxur
Síð ullarnærföt
Hlý peysa (ull eða fleece)
Göngubuxur eða flísbuxur
Húfa
Vettlingar (ull eða fleece)
Góðir gönguskór
Sólgleraugu eða skíðagleraugu (nauðsynlegt á jöklinum!)
Legghlífar
Göngustafir
Nesti (heitt að drekka, samlokur, súkkúlaði)
Gönguleið
Rauða
línan sýnir áætlaða gönguleið skv. staðfræðikorti Landmælinga Íslands, settir
inn í Garmin-staðsetningartæki og fært yfir í Google Earth, og bláa línan
sýnir gönguleiðina sem síðan var gengið. Eins og sjá má á myndinni er
tjaldstæðið nokkuð norður en Torfabæli og stefndum við á vitlausan hrygg og
þurftum að taka á okkur nokkurn krók til að koma á réttu leiðina að vörðunni.
Þaðan var gönguleiðinni fylgt upp á Hábungu með útsýn yfir Tvídægru með sínum
óteljandi mörgum vötnum og tjörnum í vestri og Langjökul í austri. Í
suðvestri reis Snæfellsjökull yfir fjöllin og í suðri sást til Oks,
Skarðsheiðar, Akrafells, Esju og Botnssúlna. Útsýn til norðurs opnaðist ekki
fyrr en við komum á hábunguna. Þaðan sást til Hrútafjarðar og til fjalla á
Ströndum, Mælifells í Skagafirði og í austri birtust núna Hekla, Bláfell,
Kerlingarfjöll, Hofsjökull og norðurhluti Langjökuls. Við fórum aðeins lengra
til norðurs eins og sést á myndinni til að njóta betur útsýnis. Heiðskírt var
yfir öllu landi og ákváðum við að taka á okkur krók að Eiríksgnípu á leiðinni
til baka. Sólin settist u.þ.b. kl. 1.15 og reis hún aftur klukkutíma seinna.

GPS-punktar
skv. korti
|
Torfabæli
|
N64 44.186 W20 35.096
|
345 m
|
|
Tjald
|
N 64 45 751 W 20 33 951
|
|
|
Varða
|
N 64 45 640 W 20 31 281
|
(840 m skv. GPS-mælingu)
|
|
Eiríksgnípa
|
N 64 47845W 20 31 139
|
|
|
Hábunga
|
N64 46 389 W20 23 626
|
1672 m (1689 m)
|
|